Núna er mjög mikið að gera í skólanum, allt að verða brjálað og fullt af prófum!!!
Langaði bara að henda inn smá spakmæli frá Ömmu Dísu sem hún sagði í dag þegar við vorum að ræða um prump: Það er ekki synd þó búkurinn leysi vind!
Afi er líka mjög fyndinn…hann segir svo margt sem er fyndið að ég hef ekki undan að skrifa niður spakmælin. Hann segir líka oft brandara og sögur frá því þegar hann var á Núpi…Hafþór er farinn að kunna þær allar! Söguna þegar Afi fór heljarstökk á tunnustöfunum (skíðunum), þegar hann kyssti stelpurnar bakvið skúrinn, hringdi skólabjöllunni alltaf á réttum tíma og frá ballinu sem var bannað að vanga á en einhver stalst til að slökkva ljósin og þá gátu þau vangað í smá stund! Ég vildi stundum óska að við fjölskyldan værum í raunveruleikaþætti þar sem allt er tekið upp, sumt vildi ég geta átt á spólu eins og til dæmis brandarana um Stebba Snara! Ef þið hittið Afa minn einhverntíman þá ættuð þið að biðja hann um þann brandara! Óborganlegur!
Alveg yndislegt að hafa þau í heimsókn
Um helgina förum við í ferðalag og ætlum að skoða Monterey Bay sem er nálægt San Francisco. Það á að vera með fallegri stöðum í Californiu. Set inn myndir seinna


Eydís ég er í kasti… ég heyri afa þinn segja þessar sögur og þá sérstaklega þegar hann var á Núpi !! maður hefur eitthvað heyrt af því….. bið rosalega vel að heilsa öllum…. kv. úr frostinu í Keflavíkinni….