Þar sem mér finnst ekkert sérstaklega gaman að blogga og er stöðugt að fresta því þá hef ég ákveðið að örblogga í staðinn.
Örbloggið verður þá bara nokkrar setningar á nokkurra daga millibili!
Amma Dísa og Afi Hafsteinn eru komin til okkar
Voðalega notalegt og gott að hafa þau.
Ég byrjaði nýlega í tveimur nýjum fögum, þjóðhagfræði og American Government. Mjög skemmtileg en núna er sko alveg nóg að gera!
Veðrið síðustu daga hefur verið alveg ótrúlegt. Hitinn í dag fór yfir 38 gráðurnar…sjæse!
Kennarinn minn í American Government hefur ákveðið að kalla mig alltaf Miss Iceland…þannig að þegar ég rétti upp hönd segir hann “Yes, miss Iceland”. Þegar ég skila verkefni segir hann “thank you miss Iceland” og svo framvegis. Pínu vandræðalegt
Halloween var síðustu helgi og það var geggjað. Allir krakkarnir í hverfinu komu eða öllu heldur hlupu á milli húsa og sögðu Trick or Treat, rifu nammið af manni og tróðu því í hálffulla KODDAVERIÐ sem þau voru með með sér. Hógvær? Nei ég held nú ekki.
Meira seinna
Bæjó