Jæja það er nú aldeilis kominn tími á nýtt blogg. Ég hef ekki neitt rosalega mikið að segja frá og ætla því að hafa bara svona nokkra punkta um það sem gerst hefur.
Amma Sigrún er búin að vera hérna í heimsókn síðustu 3 vikur og fer heim um næstu helgi. Það er voðalega gott og heimilislegt að hafa hana hérna hjá okkur.
Hafþór átti afmæli í síðustu viku og varð 12 ára og má því loksins að eigin sögn horfa á bannaðar myndir. Í tilefni afmælisins fór fjölskyldan út að borða á ESPN Zone sem er svona sport bar/veitingastaður í Downtown Disney.
Það RIGNDI í síðustu viku!! sem var æði því það hafði ekki rignt síðan ég kom. Veðrið er búið að vera ótrúlegt síðust daga. Á mánudaginn var heitasti dagur sem mælst hefur verið í Los Angeles EVER og svo í sömu viku voru thunderstorms með tilheyrandi drama Californiubúa.
Árni minn er núna búinn að kaupa sér miða til að koma í heimsókn um jólin og ég er svoooo spennt
hann kemur 17. des og fer svo heim mánuði seinna, þessi jól verða æði!
Hér eru Ameríkanarnir alveg að fara á límingunum við Halloween skreytingar. Húsin í götunni eru orðin þakin köngulóavefjum og legsteinum og fleira ógeði! En ég frétti af konunum hérna í götunni að gatan okkar væri THE HALLOWEEN gatan í hverfinu! Þetta verður mega spennandi.
Ég, Mamma og Amma fórum í JC Penney um daginn. Þar spurði afgreiðslukonan okkur hvaðan við værum. Og við sögðum henni að við værum frá Íslandi…eftir smá stund spurði hún svo hvað væri frægt við Ísland og þá segir mamma henni að þar séu eldfjöll og kindur og ég segi henni að víkingarnir hafi búið á Íslandi! Eftir að henni tókst að melta þetta aðeins sagði hún við mig, “já ég sé það núna, þú lítur rosalega mikið út eins og víkingur!” THANKS!!!!! Gott er að taka það fram að afgreiðslukonan var með jafn margar heilasellur og kálhaus og talaði og hreyfði sig í samræmi við það!
Ég skrifa svo eitthvað fleira sem mér dettur í hug seinna…vonandi bara bráðlega



það var mikið … búin að bíða leengi eftir þessu bloggi!

Jiii það verður geggjað hjá ykkur um jólin
Og til hamingju með litla (stóra) bróðir
-lovelove
Oh, þið eruð svo heppin mig langar svo til ykkar aftur það verður örugglega æðislegt þegar Halloween er …
og til hamingju með Hafþór, þú skilar kveðju til hans 
-Kristín Edda
Takk fyrir þessa frábæru sögu. Nú verður maður ekki í vandræðum með að kaupa jólagjöf handa þér, ” víkingurinn ” minn…. Knús á ykkur
Hæ skvís! Takk fyrir bloggið, alltaf gaman að lesa það sem þú skrifar.. ég skellihló alveg óvart upphátt á bókasafninu í dag þegar ég las um víkingasöguna.. og að þið hefðuð neyðst til að fara í peysu, æææi greyið þið! hahaha
)
Annars er allt gott að frétta héðan og húfan og trefillinn sem amma þín prjonaði á Ísabellu kemur sér vel í haustveðrinu og kuldanum hér.
Til hamingju með Hafþór knúsaðu hann frá okkur, og vertu svo endilega dugleg að skrifa.. nenni ekki að bíða svona lengi eftir næsta bloggi :*
knús á þig fallegust