Síðustu dagar hafa verið áhugaverðir. Skólinn byrjaði fyrir viku síðan ! Hannnn er miklu líkari Verzló heldur en Háskólanum, aðallega vegna þess að sumir krakkanna eru 18 ára og ekki alveg búnir að átta sig á lífinu. Það er líka fullt af eldra fólki hérna þannig að þetta jafnast alveg út. Fyrsti tíminn minn var Interior Design og var hann MJÖG áhugaverður. Fyrsta verkefnið var að gera client profile og taka viðtal við annan nemenda, fara svo heim og hanna þeirra heimili og koma svo aftur og kynna verkefnið. Mjög metnaðarfullt fyrsta verkefni en jafnframt mjög skemmtilegt
Ég er einnig í ensku, þar sem kennarinn er algjör snillingur. Hann kenndi áður í Compton College sem er “glæpa-klíku-hverfi” rétt hjá L.A. og kallar því ekki allt ömmu sína. Ég er í stærðfræði kúrs sem ég hef tekið áður í Verzló en þessi er bara miklu skemmtilegri, ég er núna bæði tilbúin til að læra stærðfræði og kennarinn er skemmtilegur sem skemmir ekkert fyrir. Núna sit ég dag og nótt og læri heima og kem í tímann BÚIN að gera dæmin…þvílíkur munur sem það er!!
Lögfræðikennarinn, Mrs. Goldberg, hefur þvílíkan metnað að maður gæti ekki komið ólesinn í tíma bara vegna þess hve vonsvikin hún yrði. Hún segir í hverjum einasta tíma….since you are now a law student you have to realize …eða you have to be able to… hún er æði
Skólinn er semsagt skemmtilegur! Smá svona High School Musical stemming með öllum karakterunum úr Not another teen movie…án gríns hér eru sætu stráka klíkur, íþróttaklíkur, nörda hópar, mansonistar, Asíu grúppur og svo framvegis og svo framvegis. Ég er allavega ekki í neinni klíku! Aðallega þar sem ég þekki ekki neinn
hahaha
Eftir að Kristján og krakkarnir fóru heim höfum við eiginlega bara legið í leti. Við færðum öll húsgögnin á rétta staði og fórum svo í IKEA og keyptum það allra nauðsynlegasta! Núna er herbergið mitt tilbúið og draslið komið í kommóðuna. Dagana eftir að þau fóru var alveg rosalega heitt en það er núna að lagast og var eitt kvöldið það kalt að við þurftum að fara í peysu….ég vona bara að það komi ekki fyrir aftur!!
Lífið hérna í Parliament place er nú loksins komið í fastar skorður og höfum við notið útiverunnar og haft það gott. Skólinn hjá Hafþóri byrjar 8. september og erum við búin að hjóla þangað og taka hann út. Hafþór er búinn að læra á skápinn sinn og allt ætti að ganga smoothly þegar fyrsti dagurinn rennur upp.
-Eydís
Ps. Interior Design kennarinn minn segir alltaf mmmkey eins og kennarinn í Southpark!
hún er fyndin…
Vá þetta hljómar svo skrítið! Ertu búin að ákveða hvaða klíku þú ætlar að vera í?
En frábært hvað þið hafið það gott þarna úti:)
Vá hvað þetta hljómar allt saman spennandi hjá þér!
Nenniru svo að setja inn myndir af þér þegar þú ert komin í einhverja klíku? Sérstaklega ef mansonista eða asíubúa klíkan verður fyrir valinu…
Eydís það er mjög nauðsynlegt að þú komir þér inní einhverja klíku og þá er ég að meina mansonista-klíkuna!!
p.s. sit á símanum í Össur og sakna þín dúlla
ég elska þetta og enskusletturnar þínar elska ég mögulega enn meira. mmmkey girl. Sammála stelpunum með klíkurnar. sjálf held ég með Asíu-klíkunni. love ya ‘n’ miss ya
ótrúlega sammála stelpunum með möst á klíku. ég legg til Mean Girls klíku!
svo gaman að heyra
Ekkert smá gaman að lesa bloggið þitt sæta:) gaman að skyggnast inn í ameríku lífið og sjá í hvaða klíku þú endar;) haha.. ég er einmitt byrjuð að skoða skóla í BNA fyrir skiptinámið mitt svo það er gaman að lesa um þína reynslu..
Allavega,
haltu áfram að koma með skemmtileg blogg sem upplífga tímann hjá mér þar sem ég sit í tíma þar sem bókasafnsfræðingur er að kenna okkur á Evrópusambandsheimasíðuna! DAUÐINN eini!
heyrumst
Vá en spennó!
Ég legg til að þú stofni þína eigin klíku og verður “the queen” eins og B
- xoxo
p.s. þá er skyp í fokki, þarf að redda því! gat ekki hringt í þig um daginn en sá að þú varst inná