Fyrir viku síðan héldum við fjölskyldan ásamt Kristjáni og krökkunum í smá ferðalag norður frá Ladera Ranch. Við keyrðum framhjá LA, Malibu, komum við í Carpenteria og fengum okkur að pabba sögn „besta hamborgara í heimi“, keyrðum svo áfram framhjá Santa Barbara og stoppuðum í danska bænum Solvang. Þar eru öll húsin í dönskum stíl, tvær myllur eru í þorpinu og litla hafmeyjan er á torginu. Þar rétt hjá eyddum við svo nótt föstudagsins 13. á móteli!(mjög góð hugmynd, I know)
Daginn eftir var ákveðið að keyra að Seqouia þjóðgarðinum, þar sem stærstu tré í heimi eru. Á leið okkar þangað keyrðum við framhjá endalausum ökrum. Ökrum með vínberjum, sítrónum, lime, ferskjum og skrilljón fleiri ávöxtum. Yndislega fallegt umhverfi og hrikalega heitt. Við gistum svo rétt fyrir utan garðinn og svöluðum hita okkar í sundlauginni. Næsti dagur var tekinn snemma og við héldum inn í þjóðgarðinn. ÞVÍLÍKT magn af trjám og klettum. Stærsta tréð (NB rúmmálslega séð ekki hæsta) er um 11 metrar í þvermál við ræturnar! Um kvöldið var svo keyrt heim.
Gestir okkar til 3 vikna fóru svo heim í morgun. Síðustu dögunum hérna eyddu þau í búðum að versla það allra nauðsynlegasta og svo í afslöppun í sundlauginni. Takk fyrir komuna Kristján, Benni, Kristín Edda og Gunnar, húsið er tómlegt án ykkar. Við erum strax farin að hlakka til að fá ömmu og afa sem koma þó ekki fyrr en í október.
Á mánudaginn byrjar svo skólinn hjá mér. Í dag ætla ég því að kaupa bækur og gera herbergið reddí. Þá ætti ég að vera tilbúin á mánudaginn fyrir hina almennu rútínu sem ég hef ekki verið í síðan í Verzló. Ég hlakka mikið til.
Hafþór byrjar hinsvegar ekki í skólanum fyrr en 5. september og hefur því mikinn tíma til að þjónusta systur sína og æfa sig í körfubolta.
Síðustu daga hefur verið alveg rosalega heitt hérna í Cali. 40 stig í gær og mér finnst svona á öllu að það verði ekki síðra í dag. Þetta er alltof heitt fyrir svona óvanann Íslending eins og mig og ætla ég því annaðhvort að vera í sundi eða bara inni!
-Eydís











Krúttlegur þessi Danski bær. Takk fyrir að skrifa og leyfa okkur að vera með í anda. Knús til ykkar.