Nýtt land – Nýtt blogg

Jæja, þá er ég komin til Californiu eftir mikla eftirvæntingu og bið síðastliðna mánuði. Ég lenti hérna síðasta miðvikudag og hef verið busy síðan. Guðni, Guðný og strákarnir og Kristján og fjölskylda eru í heimsókn. Við erum búin að fara aðeins að versla, í hjólatúr og í sundlaugina hérna rétt hjá.

Síðasta föstudag fórum við í Universal Studios. Þar sáum við hvernig bíómyndir eru búnar til, Wisteria lane götuna í Desperate Housewifes, War of the Worlds settið og fórum í nýja King Kong 360 3D „rússíbanann“. Allir voru hæst ánægðir með þennan garð og skemmtu sér vel.

Húsið hérna í Parliament Place er ÆÐI! Allt til alls og ALLT XLARGE :) Það eru meira að segja mjúkar klósettsetur!!!! Hverfið er eins og í Desperate Housewifes og nágrannarnir jafn smeðjulegir. Sundlaugin er í næstu götu og héldum við 8 ára afmælið hans Gunnars þar í gær, æðisleg veisla með flottustu afmælisköku sem ég hef séð.

Ég fór í skólann í dag og í gær. Þar fór ég í einskonar “starfskynningu“ og hitti alla hina international stúdentana. Fór í stöðupróf í ensku og stærðfræði og skráði mig svo í kúrsa fyrir komandi önn. Ég fékk eina götóttustu stundatöflu sem um getur og verður þessi vetur því mjög áhugaverður. Kúrsarnir sem ég valdi eru interior design, government history, macro economics, legal environment of businesses og introduction to company information systems og svo er ég að reyna að komast inn í stærðfræði og ensku en þar sem ég er frekar sein að sækja um kúrsa eru þeir allir fullir :/

En skólinn er frábær, rosalega nálægt og starfsfólkið hjálplegt. International stúdentarnir eru krúttlegir. Fullt af asíubúum…allir rosalega góðir í stærðfræði og eru að fara í verkfræði eða líffræði. Svo eru fullt af öðrum útlendingum…frá Búrma, Íran, Hollandi, Ítalíu, London, Svíþjóð og fullt af öðrum löndum. Allir jafn fyndnir og vandræðalegir :)

Á morgun erum við að fara í lítið ferðalag. Ætlum að leggja af stað til LA í fyrramálið, fara svo til Camarillo og svo til Santa Barbara og gista þar. Svo kemur bara í ljós hvað við gerum. Ég set inn myndir af því seinna.

Ég blogga aftur þegar við komum heim.

-Eydís

5 Responses to Nýtt land – Nýtt blogg

  1. gaman að lesa! þú verður að vera dugleg að blogga :)

  2. mjög gaman að lesa og sjá myndir strax! er ekki unaðslegt veður þarna allan ársins hring? gangi þér nú vel í skólanum :)

  3. Alltaf gaman að lesa hvað þiið eruð að gera! Sakna ykkar og gangi þér og hafþóri vel í skólanum!

  4. Vá en spennó!
    interior design…hljómar vel :)
    hlakka til að lesa meira :)

  5. Ohh hvað það er gaman að sjá hvað er gaman hjá ykkur! =)
    En damn má ég líka! Ég er Despó faaaan, alveg bráðnaði þegar ég sá húsið hennar Susan :P verð að kíkja í þennan garð við tækifæri ;)
    kysstu alla frá mér Eydís mín og gangi þér vel í skemmtilega skólanum ;*

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s